15 Nóvember 2021 09:10

Brot 16 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, á móts við Framheimilið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar í Safamýri er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.