27 September 2022 08:44

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, á móts við Víkingsheimilið. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 65 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar í Safamýri er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.