15 Febrúar 2024 14:43

Brot 27 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, á móts við Víkingsheimilið. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Safamýri er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.