20 Maí 2011 12:00

Brot 31 ökumanns var myndað í Safamýri í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, við Framheimilið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 43-58% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 44-46 km/klst.