17 September 2013 12:00

Brot 21 ökumanns var myndað í Safamýri í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, á móts við Framheimilið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.