10 Júní 2014 12:00

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, við Framheimilið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54. 

Vöktun lögreglunnar í Safamýri er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.