12 Júní 2015 16:54

Brot 20 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, á móts við Framheimilið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 43 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Safamýri er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.