23 Maí 2016 16:43

Brot 6 ökumanna voru mynduð í Seljaskógum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljaskóga í norðurátt, við Ársel. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.

Vöktun lögreglunnar í Seljaskógum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.