23 Maí 2019 07:53

Brot 10 ökumanna voru mynduð í Seljaskógum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljaskóga í norðurátt, við Ársel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar í Seljaskógum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.