18 Júní 2019 15:16

Brot 10 ökumanna voru mynduð í Seljaskógum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljaskóga í suðurátt, við Ásasel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Seljaskógum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.