5 Febrúar 2020 15:14

Brot 5 ökumanna voru mynduð í Seljaskógum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljaskóga í suðurátt, við Ásasel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því óku tiltölulega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar í Seljaskógum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.