2 Desember 2010 12:00

Brot 50 ökumanna voru mynduð í Sigtúni í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sigtún í austurátt, að Reykjavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 118 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Sigtúni var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.