24 Maí 2012 12:00

Brot 46 ökumanna voru mynduð í Sigtúni í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sigtún í austurátt, við Ásmundarsafn. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 100 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira. 

Vöktun lögreglunnar í Sigtúni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.