19 Október 2012 12:00

Brot 28 ökumanna voru mynduð í Sigtúni í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sigtún í vesturátt, milli Gullteigs og Reykjavegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 41 ökutæki þessa akstursleið og því ók mikill meirihluti ökumanna, eða 68%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Sigtúni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.