4 Nóvember 2009 12:00

Brot 35 ökumanna voru mynduð í Sigtúni í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sigtún í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 63 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en helmingur ökumanna, eða 56%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60.

Eftirlit lögreglunnar í Sigtúni var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum við götuna en þeir hafa kvartað undan hraðakstri.