8 September 2021 15:41

Brot 59 ökumanna voru mynduð í Skeiðarvogi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skeiðarvog í norðurátt, á móts við Vogaskóla. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 233 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Skeiðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.