28 Júní 2022 16:21

Brot 62 ökumanna voru mynduð í Skeiðarvogi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skeiðarvog í norðurátt, að Karfavogi. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 213 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Skeiðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.