14 Febrúar 2023 12:35

Brot 20 ökumanna voru mynduð í Skeiðarvogi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skeiðarvog í norðurátt, að Karfavogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 128 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Vöktun lögreglunnar í Skeiðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.