2 Mars 2011 12:00

Brot 59 ökumanna voru mynduð í Skeiðarvogi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skeiðarvog í norðurátt, austan gatnamóta við Sólheima. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 195 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 53. 

Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur en við Skeiðarvog eru bæði Vogaskóli og Menntaskólinn við Sund.