13 Nóvember 2015 16:49

Brot 100 ökumanna voru mynduð í Skeiðarvogi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skeiðarvog í suðurátt, á móts við Sólheima. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 296 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Skeiðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.