4 Mars 2016 17:41

Brot 50 ökumanna voru mynduð í Skeiðarvogi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skeiðarvog í suðurátt, á móts við Skeiðarvog 25. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 325 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Skeiðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.