24 Maí 2018 16:01

Brot 63 ökumanna voru mynduð í Skeiðarvogi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skeiðarvog í norðurátt, á móts við Vogaskóla. Á einni klukkstund, fyrir hádegi, fóru 163 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Skeiðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skúrir og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.