1 Nóvember 2010 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Skipasundi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skipasund í norðurátt, á milli Holtavegar og Hólsvegar. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 23 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar í Skipasundi var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.