1 Nóvember 2010 12:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð í Skipasundi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skipasund í suðurátt, á milli Holtavegar og Hólsvegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 21 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 44.

Vöktun lögreglunnar í Skipasundi var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.