18 Júlí 2019 08:57

Brot 62 ökumanna voru mynduð í Skipholti í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skipholt í vesturátt, á móts við Skipholt 33. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 207 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar í Skipholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.