17 Mars 2022 14:32

Brot 35 ökumanna voru mynduð í Skipholti í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skipholt í vesturátt, að Brautarholti. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 151 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar í Skipholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.