27 Ágúst 2012 12:00

Brot 73 ökumanna voru mynduð í Skipholti í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skipholt í suðurátt, að Bólstaðarhlíð/Háteigsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 180 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60. 

Vöktun lögreglunnar í Skipholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. 

Vöktun lögreglunnar í Skipholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.