21 Apríl 2009 12:00

Þrjátíu voru staðnir að hraðakstri í Skógarseli í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 30 ökumanna mynduð í Skógarseli en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, við bensínstöð N1. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 250 ökutæki þessa akstursleið og því óku 12% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Skógarseli og þá óku 21% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var mun minni umferð um götuna (117 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var líka 63 km/klst.