26 Apríl 2010 12:00

Brot 17 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skógarsel í suðurátt, við bensínstöð N1. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 200 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega tíundi hluti ökumanna, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.

Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Í Skógarseli var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Skógarseli en þá óku hlutfallslega fleiri, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 21%.