14 Desember 2021 09:12

Brot 4 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skógarsel í suðurátt, að Ölduseli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 170 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar í Skógarseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.