31 Maí 2022 09:45

Brot 8 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skógarsel í norðurátt, við Þverársel. Á einni klukkustund, um hádegi, fóru 130 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar í Skógarseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.