22 September 2008 12:00

Brot 24 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Breiðholti í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skógarsel í norðurátt, að Þverárseli. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 180 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69.  

Vöktun lögreglunnar í Skógarseli, en í nágrenni hans er Ölduselsskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.