29 Apríl 2008 12:00

Brot 25 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Breiðholti í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skógarsel í suðurátt, við bensínstöð N1. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 117 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.      

Eftirlit lögreglunnar í Skógarseli er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Skógarseli var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.