18 Ágúst 2009 12:00

Tólf voru staðnir að hraðakstri í Smárarima í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru brot 12 ökumanna mynduð í Smárarima en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 26 ökutæki þessa akstursleið og því óku 46% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Eftirlit lögreglunnar í Smárarima var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum sem hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.