11 Október 2010 12:00

Brot 6 ökumanna voru mynduð í Sóleyjarima í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sóleyjarima í suðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 20 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 50 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar í Sóleyjarima var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.