28 Ágúst 2018 16:17

Brot 5 ökumanna voru mynduð í Sóleyjarima í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sóleyjarima í suðurátt, á móts við Sóleyjarima 17. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 22 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Sóleyjarima er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.