1 Júní 2021 15:54

Brot 9 ökumanna voru mynduð í Sóleyjarima í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sóleyjarima í suðurátt, á móts við Sóleyjarima 17. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Sóleyjarima er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að smá skúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.