18 Ágúst 2009 12:00

Fimmtán voru staðnir að hraðakstri í Sóleyjarima í Reykjavík á fimmtudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru brot 15 ökumanna mynduð í Sóleyjarima en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því óku 47% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48,5 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 55.

Eftirlit lögreglunnar í Sóleyjarima var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum sem hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.