24 Júní 2008 12:00

Brot 41 ökumanns var myndað í Stakkahlíð sl. fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, við Úthlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 87 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 62.