4 September 2017 09:59

Brot 14 ökumanna voru mynduð í Stakkahlíð í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, við Úthlíð í námunda við Skóla Ísaks Jónssonar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 98 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.