25 Ágúst 2010 12:00

Brot 10 ökumanna voru mynduð í Stakkahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í suðurátt, við Úthlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því ók  fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð, en við hana og Bólstaðarhlíð er Skóli Ísaks Jónssonar, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.