31 Ágúst 2012 12:00

Brot 41 ökumanns var myndað í Stakkahlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, við Úthlíð (skammt frá Skóla Ísaks Jónssonar). Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 145 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.  

Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. 

Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.