27 Ágúst 2014 12:00

Brot 18 ökumanna voru mynduð í Stakkahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, við Úthlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 121 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.

Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.