23 Nóvember 2015 17:20

Brot 12 ökumanna voru mynduð í Stakkahlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í suðurátt, við Úthlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.