20 Apríl 2016 10:17

Brot 30 ökumanna voru mynduð í Stakkahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, við Úthlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 77 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Stakkahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.