17 Júní 2009 12:00

Tuttugu og einn var staðinn að hraðakstri í Stakkahlíð í Reykjavík fimmtudaginn 11. júní sl. en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar 11. júní eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði var brot 21 ökumanns myndað í Stakkahlíð en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, að Úthlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því óku 24% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Stakkahlíð og þá óku 47% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna (87 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 46 km/klst.