29 Febrúar 2008 12:00

Brot þrjátíu og tveggja ökumanna voru mynduð í Stakkahlíð á miðvikudaginn í síðustu viku. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, við Úthlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 128 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Eftirlit lögreglunnar í Stakkahlíð þjónaði þeim tilgangi að kanna ökuhraða við bæði Ísaksskóla og Kennaraháskóla Íslands.