22 Apríl 2008 12:00

Brot 211 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Breiðholti gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í vesturátt, að Vatnsveituvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 533 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og níu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 79.      

Eftirlit lögreglunnar í Stekkjarbakka er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Stekkjarbakka var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.