1 Apríl 2016 15:09

Brot 100 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í vesturátt, við Vatnsveituveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 419 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.