6 Apríl 2017 15:00

Brot 121 ökumanns var myndað í Stekkjarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka, við Heimahvamm, í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 466 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrjátíu og þrír óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.